Ókeypis heimsending

Braut og fylgihluti

Allir fylgihlutir

Allt í einum pakka

Með hverjum gluggatjöldum fylgir rétt magn af fylgihlutum. Auðvelt að krækja sexum í borðann og hengja upp á brautina. Loftfestingar sem lítið ber á.

Ókeypis heimsending

6 cm new wave

Mjúkar jafnar bylgjur með 6 cm millibili sem gefa gluggatjöldunum stílhreint og nútímalegt útlit. Þessi faldur hentar sérstaklega vel fyrir hör efni þar sem sveigjurnar fá að njóta sín og fallegur drapering kemur vel fram.

Vörulýsing

Efnið

Gluggatjöldin eru úr 100 PES en það er sterk blanda af Polyester. Áferð sem líkir eftir hör en þar sem þetta er polyester þá krumpast það ekki.

Brautin

Brautin kemur samsett með sama fjölda af drögurum og þarf fyrir sexurnar sem krækjast í borðann á gluggatjöldunum. Dragarnir í brautinni eru fastir en það mótar betri bylgjur.

Festingar

Hægt er að velja um loft- eða veggfestingar en báðar smella þær utan um brautina.

Sexur

Sexurnar sem fylgja eru með breitt bak og því leita þær alltaf fram. Þetta passar upp á að lögunin sé ávallt eins og stuðlar að jafnari bylgjum.

Algengar spurningar

Hvernig mæli ég fyrir þessum gluggatjöldum?

Þú mælir lengdina á gardínubrautinni og hæðina frá gólfi alveg upp að lofti. Algengt er að láta brautina ná 10 - 30 cm út fyrir báðum megin við glugga. Í pöntunarferlinu velurðu svo "flotið" en þá ertu að ákveða hversu mikið bil er á milli gólfs og gluggatjalda.

Get ég fengið prufur eða sýnishorn?

Við bjóðum upp á efnisprufur ásamt því að bjóða upp á sýnishorn af new wave gluggatjöldum. Sýnishornin eru á 70 cm braut og 70 cm á sídd.

Er hægt að sækja?

Hægt er að sækja pantanir eða fá þær sendar í pósti.

Hvað ef ég mældi vitlaust?

Gluggatjöldin koma á braut sem hægt er að draga sundur og saman. Með þessum eiginleika geta gluggatjöldin passað þó að mælingin hafi ekki verið alveg upp á sentimetra.

Fannstu ekki svarið?

Ekki hika við að hafa samband